Algengar spurningar

      Hvað er Dragon Scale?

      Dragon Scale er ný húðun (e. Coating) sem Fireball Tool hefur þróað. Orð geta varla lýst því hvað hún virkar vel, við mælum með því að þú skoðir myndbandið af virkninni.

      Eruði með myndband af vinklunum í notkun?

      Get ég fengið að skoða vörurnar?

      Ekki málið, heyrðu í okkur og fáðu að sjá eða prufa verkfærin í smiðjunni okkar.

      +354 564-4404

      Hvort á ég að velja ál eða stál (Dragon Scale)?

      • Ál vinklarnir eru léttari og þess vegna þæginlegri á ferðinni, í timbur/smíðavinnu eða í aðstæðum þar sem þeir eru notaðir annars staðar en alltaf á suðuborði.
      • Stál vinklarnir eru höggþolnari en ál vinklarnir.
      • Báðir vinklar virka mjög vel í stál-suðuvinnu, suðulúsin festist hvorki á álinu né Dragon Scale húðuninni á stál vinklunnum.

      Ég get bara keypt einn vinkil, hverju mæliði með?

      Það fer alltaf eftir aðstæðum og í hvað hann verður notaður. Vinkillinn sem við notum mest í stálsmiðjunni okkar er 300mm Mega Square Dragon Scale.